Milljarðarnir hans Magnúsar Ármanns og innherjasvik.

Hvernig stendur á því að ekki hefur verið upplýst um það hver fékk alla milljarðana sem Magnús Ármann keypti hlutabréf í Landsbankanum fyrir í október, og fékk lánað fyrir í bankanum?

Var ekki veðið hlutabréf í Byr?  Einhver hefur fengið peningana út úr bankanum.  Skiptir þetta engu máli?  Er þetta ekki bara einhver hvítþvottur og undanskot á peningum í gangi þarna?

 Þetta er dæmi um hluti sem þarf að fara að koma upp á yfirborðið strax.  Hafi einhverjir innherjar verið að losa peninga úr Landsbankanum þarna með þessu gerning þá er það væntanlega ólöglegt eða hvað?  Það þarf að upplýsa þessi mál strax svo hægt sé að reyna að ná í þessa peninga ef um ólöglega gerninga er að ræða.

Ég veit um dæmi þess að innherji í Glitni hafi losað fé rétt fyrir hrunið sem hann átti ekki að geta gert sem innherji.  Þetta var s.s. háttsettur starfsmaður í bankanum sem á ekki að geta selt nema á ákveðnum tímum, t.d. eftir uppgjör. Ég ætla ekki að fara nánar út í þetta annað en að segja að ef einhver væri að rannsaka þetta þá væri þetta komið í ljós.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

GGBREKKU

Höfundur

GGBREKKU
GGBREKKU
Áhugamaður um samfélagsmál
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.5.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband