Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Lögbrot ykkar réttlætir ekki annað lögbrot

Ég hefði hringt í lögreglunna og kært ykkur fyrir lögbrot en bannað er að halda til rjúpna á fjórhjólum. Jafnvel þó þau séu ekki notuð allan tímann. Það réttlætir hinsvegar ekki eignaspjöll og þjófnað. Hvorugt er stórmannlegt.
mbl.is „Stórmenni að ná sér í jólamatinn“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Milljarðarnir hans Magnúsar Ármanns og innherjasvik.

Hvernig stendur á því að ekki hefur verið upplýst um það hver fékk alla milljarðana sem Magnús Ármann keypti hlutabréf í Landsbankanum fyrir í október, og fékk lánað fyrir í bankanum?

Var ekki veðið hlutabréf í Byr?  Einhver hefur fengið peningana út úr bankanum.  Skiptir þetta engu máli?  Er þetta ekki bara einhver hvítþvottur og undanskot á peningum í gangi þarna?

 Þetta er dæmi um hluti sem þarf að fara að koma upp á yfirborðið strax.  Hafi einhverjir innherjar verið að losa peninga úr Landsbankanum þarna með þessu gerning þá er það væntanlega ólöglegt eða hvað?  Það þarf að upplýsa þessi mál strax svo hægt sé að reyna að ná í þessa peninga ef um ólöglega gerninga er að ræða.

Ég veit um dæmi þess að innherji í Glitni hafi losað fé rétt fyrir hrunið sem hann átti ekki að geta gert sem innherji.  Þetta var s.s. háttsettur starfsmaður í bankanum sem á ekki að geta selt nema á ákveðnum tímum, t.d. eftir uppgjör. Ég ætla ekki að fara nánar út í þetta annað en að segja að ef einhver væri að rannsaka þetta þá væri þetta komið í ljós.


Jöklabréfaruglið á s.s. að halda áfram.

Það ætti að borga þessum mönnum í Seðlabankanum bætur, þeir eru svo vitlausir.  Veruleikafirringin er algjör.
mbl.is Stýrivextir hækkaðir um 6 prósentur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Auglýsa stöðurnar!

Af hverju voru þessar stöður ekki auglýstar?  Var ekki hægt að ráða bankastjóra til bráðabirgða og auglýsa svo stöðurnar?  Með því móti væri hægt að tryggja hæfa einstaklinga en ekki t.d. "ráðgjafa forsætisráðherra" í stöðurnar.  Eru það meðmæli að hafa verið ráðgjafi Geirs síðastliðið ár?
mbl.is Viðskiptaráðherra vill að laun bankastjóra verði endurmetin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýju bankastjórarnir

Af hverju voru þessir bankastjórar ekki bara ráðnir til bráðabirgða og stöðurnar auglýstar?  Er það gott í miðju fárinu að ráða "ráðgjafa" forsætisráðherra bankastjóra.  Er ekki einkavinavæðing enn á ferðinni?  Er ekki auðveldara að verja há laun ef allir eru vissir um að sá hæfasti hafi verið ráðinn?

Um bloggið

GGBREKKU

Höfundur

GGBREKKU
GGBREKKU
Áhugamaður um samfélagsmál
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.5.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband